24. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2007 Allir dagar |
24. ágúst er 236. dagur ársins (237. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 129 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 79 - Vésúrvíus gýs. Borgirnar Pompeii, Herculaneum og Stabiae grafast í ösku.
- 1215 - Innósentíus 3. páfi lýsti Magna Carta ógilt.
- 1572 - Bartólómeusarvígin í París. Kaþólikkar myrtu þúsundir húgenotta samkvæmt skipun Karls 9..
- 1608 - Fyrsti opinberi fulltrúi Bretlands steig á land við Surat á Indlandi.
- 1841 - Bjarni Thorarensen, amtmaður og skáld, lést 54 ára gamall. Jónas Hallgrímsson orti um hann erfiljóð sem hefst þannig: Skjótt hefur sól brugðið sumri...
- 1906 - Ritsími á milli Skotlands og Íslands um Hjaltland og Færeyjar var opnaður og var sæsímastrengurinn 534 sjómílur á lengd.
- 1944 - Sveinn Björnsson, forseti Íslands, og Franklin D. Roosevelt, forseti Bandaríkjanna, ræddust við í Hvíta húsinu í Washington, en Sveinn var í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum.
- 1968 - Norræna húsið í Reykjavík var vígt. Finnski arkitektinn Alvar Aalto teiknaði bygginguna. Norðmaðurinn Ivar Eskeland var ráðinn fyrsti forstöðumaður hússins.
- 1980 - Fyrstu alþjóðlegu rallkeppni á Íslandi lauk eftir fimm daga keppni.
- 1983 - Fjölmennur fundur í Reykjavík, sem haldinn var í veitingahúsinu Sigtúni af svokölluðum Sigtúnshópi, krafðist breytinga á húsnæðislánakerfinu.
- 1991 - Úkraína fékk sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 2006 - Á þingi Alþjóðasambands stjarnfræðinga var samþykkt að telja Plútó ekki lengur til reikistjarna sólkerfisins.
[breyta] Fædd
- 1635 - Peder Schumacher Griffenfeld, danskur stjórnmálamaður (d. 1699).
- 1938 - Halldór Blöndal, alþingismaður.
[breyta] Dáin
- 79 - Plinius eldri, rómverskur rithöfundur (f. 23).
- 1794 - Björn Halldórsson, prestur í Sauðlauksdal (f. 1724).
- 1841 - Bjarni Thorarensen, amtmaður og skáld (f. 1786).
- 1888 - Rudolf Clausius, þýskur eðlisfræðingur (f. 1822).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |