29. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2007 Allir dagar |
29. ágúst er 241. dagur ársins (242. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 124 dagar eru eftir af árinu.
Dagurinn er kallaður höfuðdagur, vegna píslarvættis Jóhannesar skírara. Dagurinn er einnig tengdur íslenskri hjátrú, en menn trúðu því að veðurfarið þennan dag héldist næstu þrjár vikur.
[breyta] Atburðir
- 1521 - Tyrkir náðu Belgrad á sitt vald.
- 1791 - Skip James Cook, HMS Endeavor, strandaði á Kóralrifinu mikla undan strönd Ástralíu.
- 1862 - Akureyri fékk kaupstaðarréttindi í annað sinn. Fyrstu kaupstaðarréttindin voru veitt 1786 um leið og Reykjavík varð kaupstaður.
- 1910 - Fyrsti keisaraskurður á Íslandi, þar sem bæði móðir og barn lifðu, var framkvæmdur í Reykjavík.
- 1914 - Ráðherra gaf út tilskipanir vegna ófriðarins í Evrópu til að tryggja hlutleysi Íslands. Íslendingum var bannað að veita ófriðarríkjunum eða ganga í heri þeirra.
- 1944 - Á Ísafjarðardjúpi veiddist 300 kílógramma túnfiskur og þóttu það tíðindi. Næstu daga veiddust fjórir aðrir.
- 1945 - Hafin var bygging húss fyrir Þjóðminjasafn Íslands við Hringbraut í Reykjavík og var það kallað „morgungjöf lýðveldisins til þjóðarinnar“. Húsið var tekið í notkun 1952.
- 1948 - Baldur Möller varð skákmeistari Norðurlanda, fyrstur Íslendinga.
- 1962 - Vígt var elliheimili og stofnaður menningarsjóður á Akureyri til að minnast 100 ára afmælis kaupstaðarréttindanna.
- 1971 - Eldur kom upp í kirkjunni á Breiðabólstað á Skógarströnd vegna gastækja og brann hún algjörlega. Á sama tíma kviknaði í bíl sóknarprestsins.
- 1992 - Kvikmyndin Svo á jörðu sem á himni eftir Kristínu Jóhannesdóttur var frumsýnd. Myndin fjallar um strand franska rannsóknarskipsins Pourquoi pas?
- 2005 - Fellibylurinn Katrina olli yfir 1600 dauðsföllum og gríðarlegri eyðileggingu á suðurströnd Bandaríkjanna.
[breyta] Fædd
- 1632 - John Locke, enskur heimspekingur (d. 1704).
- 1876 - Charles F. Kettering, bandarískur uppfinningamaður (d. 1958).
- 1915 - Ingrid Bergman, sænsk leikkona (d. 1982).
- 1923 - Richard Attenborough, breskur heimildarmyndagerðarmaður.
- 1938 - Robert Rubin, fjármálaráðherra Bandaríkjanna.
- 1936 - John McCain, bandarískur þingmaður.
- 1958 - Michael Jackson, bandarískur söngvari.
- 1980 - David Desrosiers, kanadískur bassaleikari (Simple Plan).
[breyta] Dáin
- 1123 - Eysteinn Magnússon, Noregskonungur (f. um 1088).
- 1688 - Stefán Ólafsson, prestur og skáld í Vallanesi (f. um 1619)
- 1904 - Murad V, Ottómanskur soldán (f. 1840).
- 1966 - Sayyid Qutb, Egypskur fræðimaður (f. 1906).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |