31. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2007 Allir dagar |
31. ágúst er 243. dagur ársins (244. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 122 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1805 - Steinunn Sveinsdóttir frá Sjöundá dó í fangelsi í Reykjavík, 36 ára gömul. Hún hafði verið dæmd samsek Bjarna Bjarnasyni um að myrða konu hans og mann sinn og átti að taka hana af lífi. Hún var dysjuð uppi á Skólavörðuholti utan bæjarins við alfaraleið og hét þar Steinkudys. Meira en öld síðar voru bein hennar flutt í Hólavallagarð (kirkjugarðinn við Suðurgötu).
- 1919 - Listsýning var opnuð almenningi í barnaskólanum í Reykjavík. Var þetta fyrsta slík sýning á Íslandi. 90 verk eftir 15 listamenn voru sýnd.
- 1919 - Leikrita- og ljóðskáldið Jóhann Sigurjónsson dó í Danmörku, þar sem hann bjó, 39 ára að aldri. Hann samdi meðal annars Fjalla-Eyvind og Galdra-Loft og ljóðin Sofðu unga ástin mín, Bikarinn og Sorg, sem talið er fyrsta óbundna ljóðið á íslensku.
- 1955 - Langt suðvestur í hafi, um 100 mílur út af Reykjanesi, sáust borgarísjakar á reki og þóttu þeir vera á óvenjulegum stað.
- 1980 - Á Fljótsdalshéraði fannst silfursjóður mikill, talinn frá landnámsöld. Löngu síðar spunnust miklar deilur um aldur sjóðsins.
- 1992 - Stærsta og íburðarmesta skemmtiferðaskip, sem lagst hafði við bryggju í Reykjavík var bundið í Sundahöfn. Þetta var Crystal Harmony, 240 metra langt skip. Það kom aftur 2 árum síðar.
- 1994 - Lengsta skák í skáksögu Íslands var til lykta leidd með jafntefli eftir 183 leiki. Jóhann Hjartarson og Jón Garðar Viðarsson tefldu á Skákþingi Íslands í Vestmannaeyjum.
[breyta] Fædd
[breyta] Dáin
- 1654 - Ole Worm, danskur læknir og fornfræðingur (f. 1588).
- 1919 - Jóhann Sigurjónsson skáld.
- 1920 - Wilhelm Wundt, þýskur sálfræðingur (f. 1832).
- 1997 - Díana prinsessa af Wales (f. 1961).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |