26. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2007 Allir dagar |
26. ágúst er 238. dagur ársins (239. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 127 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 55 f.Kr. - Júlíus Caesar hóf innrás í Bretlandseyjar.
- 1839 - Bandaríski sjóherinn náði skipinu Amistad undan strönd Long Island.
- 1883 - Eldfjallið Krakatá í Indónesíu sprakk í gríðarlega öflugu eldgosi.
- 1896 - Jarðskjálfti reið yfir Suðurland og féllu margir bæir í Rangárvallasýslu. Styrkur skjálftans hefur verið metinn 6,9 stig á Richter.
- 1929 - Vélbáturinn Gotta kom úr Grænlandsleiðangri með fimm sauðnautskálfa, sem enduðu síðar ævina austur í Gunnarsholti.
- 1979 - Snorrahátíð var haldin í Reykholti til að minnast átta alda afmælis Snorra Sturlusonar.
- 1984 - Fyrsta Reykjavíkurmaraþon var haldið með 214 þátttakendum. 10 árum síðar voru þeir á fjórða þúsund.
- 1991 - Ísland tók fyrst allra ríkja upp formlegt stjórnmálasamband við Eistland, Lettland og Litháen.
[breyta] Fædd
- 1910 - Móðir Teresa, albönsk nunna (d. 1997).
- 1950 - Steinunn Sigurðardóttir, íslenskur rithöfundur.
- 1963 - Gunnlaugur Helgason, íslenskur leikari og dagskrárgerðarmaður.
- 1969 - Melissa McCarthy, bandarísk leikkona.
- 1980 - Macaulay Culkin, bandarískur leikari.
[breyta] Dáin
- 1910 - William James, bandarískur sálfræðingur (f. 1842).
- 1962 - Vilhjálmur Stefánsson, íslenskur landkönnuður (f. 1879).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |