Benjamin Franklin
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Benjamin Franklin (17. janúar 1706 – 17. apríl 1790) var stjórnmálamaður, hugsuður og uppfinningamaður sem fæddist í Boston í Nýja Englandi og varð síðar einn af leiðtogum uppreisnarmanna í bandaríska frelsisstríðinu og einn af feðrum Bandaríkjanna.