Elísabet II
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Elísabet II (fullt nafn: Elizabeth Alexandra Mary, fædd 21. apríl 1926) er drottning og þjóðhöfðingi Antígva og Barbúda, Ástralíu, Bahamaeyja, Barbados, Belís, Kanada, Grenada, Jamaíku, Nýja Sjálands, Papúu Nýju Gíneu, Sankti Kristófer og Nevis, Sankti Lúsíu, Sankti Vinsent og Grenadíneyja, Salómonseyja, Túvalú, og Bretlands.
Þar að auki er hún höfuð breska samveldisins, æðsti yfirmaður ensku biskupakirkjunnar og bresku heraflanna og lávarður Manar. Þessum embættum hefur hún gegnt síðan faðir hennar Georg VI lést árið 1952.
Hún er þjóðhöfðingi um 125 milljón manns. Eiginmaður hennar er Prins Filippus, Hertoginn Edinborgs. Saman eiga þau fjögur börn, í aldursröð Karl, Prins af Wales, (sem er ríkisarfi hennar), Anna, Prinsessa Konungleg, Pins Andrés, Hertoginn Yorks og Prins Eðvarð, Jarlinn Wessexa.