Linus Torvalds
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Linus Benedict Torvalds (fæddur 28. desember 1969 í Helsinki í Finnlandi) er finnskur tölvufræðingur þekktastur fyrir að hafa skrifað stýrikerfiskjarnann Linux. Linus lærði við Háskólann í Helsinki á árunum 1988 til 1996 og býr nú í Bandaríkjunum.