Lyndon B. Johnson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lyndon Baines Johnson (27. ágúst 1908 – 22. janúar 1973) oft nefndur LBJ, var 36. forseti Bandaríkjanna 1963 - 1969. Hann varð 37. varaforseti Bandaríkjanna eftir að hafa lengi verið þingmaður og tók við sem forseti eftir að Kennedy forseti var myrtur í Dallas í Texas 22. nóvember 1963. Hann var leiðtogi demókrata og sem forseti beitti hann sér fyrir málum eins og mannréttindalöggjöf, heilsuvernd fyrir aldraða og fátæka, aðstoð til menntunar, og „stríði gegn fátækt“. Á sama tíma jók hann stríðsreksturinn í Víetnam og fjölgaði bandarískum hermönnum þar úr 16 þúsund árið 1963 í 550 þúsund snemma árs 1968 en af þeim dóu um það bil eitt þúsund í hverjum mánuði.
Johnson var kjörinn með miklum meirihluta atkvæða kjörmanna árið 1964 og tók við sem kjörinn forseti í janúar 1965. Hann bauð sig fram til síðara kjörtímabils árið 1968, en hætti við framboð vegna óeiningar í eigin flokki og sneri sér að friðarumleitunum. Hans er minnst fyrir sterkan persónuleika og föst tök á valdamiklum stjórnmálamönnum. Erfitt er að meta langtímaáhrif hans þar sem Víetnamstríðið og óvinsældir þess vógu mjög upp á móti þeim árangri sem hann náði á sviði mannréttinda innanlands.
Fyrirrennari: John F. Kennedy |
|
Eftirmaður: Richard Nixon |