Samarkand
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Samarkand (úsbekíska: Самарқанд, persneska: سمرقند) (íbúafjöldi: 400.000) er önnur stærsta borg Úsbekistans og höfuðstaður Samarkandhéraðs. Meirihluti íbúa borgarinnar eru tadsjikar. Borgin var sett á heimsminjaskrá UNESCO árið 2001.
Borgin er ein af elstu byggðu borgum heims. Hún dafnaði sem einn af áfangastöðunum á Silkiveginum milli Kína og Evrópu.