Tadsjikar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tadsjikar eru eitt af helstu þjóðarbrotum Mið-Asíu. Þeir búa flestir í Afganistan, Tadsjikistan, Úsbekistan og Pakistan. Að auki er stór hópur tadsjískra flóttamanna í Íran og öðrum löndum heimsins. Tadsjikar eru afkomendur fornra íranskra þjóðflokka, svo sem baktra, sogda og parþa, sem settust að í Mið-Asíu í fornöld. Tadsjikar tala flestir persnesku og eru súnnítar. Uppruna tadsjika sem „þjóðar“ má rekja til Samaníðaríkisins á 9. og 10. öld.