Steven Spielberg
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Steven Allan Spielberg (f. 18. desember 1946) er bandarískur kvikmyndaleikstjóri sem hefur hlotið fern Óskarsverðlaun fyrir störf sín; árið 1986 fékk Spielberg minningarverðlaun Irving G. Thalberg fyrir framleiðslu kvikmynda, mynd hans Shindler's List (1993) hlaut Óskarsverðlaunin fyrir bestu leikstjórn og bestu kvikmynd og Saving Private Ryan fékk verðlaun fyrir bestu leikstjórn.