Lúxemborgíska
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lúxemborgíska (Lúxemborgíska: Lëtzebuergesch, Franska: Luxembourgeois, Þýska: Luxemburgisch), er vestgermanskt tungumál sem er talað í Stórhertogadæminu Lúxemborg. Tungumálið varð að opinberu tungumáli í landinu árið 1984, auk frönsku og þýsku.
Það er um það bil 300.000 manns sem eiga málið að móðurmáli.