Nikola Tesla
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nikola Tesla (10. júlí 1856 – 7. janúar 1943 í New York) var serbensk-bandarískur uppfinningamaður, eðlisfræðingur, véla- og rafmagnsverkfræðingur. Uppfinningar hans og kennileg verk eru undirstaða riðstraumskerfa. Á meðal uppfinninga hans eru fjölfasaafldreifikerfið og riðstraumsmótorar sem stuðluðu að iðnbyltingunni síðari. SI-mælieining segulstyrks, tesla er nefnd í höfuðið á honum.