Búdapest
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Búdapest er höfuðborg Ungverjalands og jafnframt miðpunktur, stjórnmála, menningar, viðskipta, iðnaðar og samgangna fyrir Ungverjaland í heild sinni.
Rúmlega 1,7 milljón manns búa í borginni sem er nokkru færri en á hátindi íbuafjölda um miðjan níunda áratug 20. aldarinnar en þa bjuggu rúmlega 2,1 milljón manns í borginni. Árið 1873 sameinuðust borgirnar á bökkum Dónár, Buda og Óbúda á hægri bakkanum, þeim vestari, og Pest á vinstri bakkanum, þeim eystri í eina borg, Búdapest. Nú er borgin sú sjötta stærsta innan Evrópusambandisns
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
Rómverjar reistu bæinn Aquincum, 89 e.Kr. á grunni fornra keltneskrar byggðar nærri því sem síðar varð Óbuda, frá 106 fram undir lok 4. aldar e. Kr. var bærinn miðpunktur svæðisins sem kallaðist lægri Pannonia. Pest varð vettvangur Contra Aquincum (ellegar Trans Aquincum), staðar af minna mikilvægi. Nafnið Pest (eða Peshta) er talið upprunnið af tyrknesku tungumáli. Svæðið varð heimahagar ýmsra slavneskra hópa.
Í kringum árið 900 komu ungverjar austan úr mið asíu og settust að þar sem nú er Ungverjaland og stofnuðu konungsríkið Ungverjaland einni öld síðar. Endurbygging Pest gekk fljóttfyrir sig að aflokinni innrás Mongóla árið 1241, en Buda, varð höfuðborg Ungverjalands árið 1361.
Yfirtaka Ottoman veldisins á mest öllu Ungverjalandi á 16. öld tafði vöxt borganna, en þær féllu Tyrkjum í skaut árið 1541. Austurríki undir stjórn Habsborgara endurheimti borgirnar 1686, frá 1526 höfðu Habsborgararnir jafnframt verið Konungar Ungverjalands, þótt þeir hefðu misst yfirráð yfir landinu að mestu.
Pest óx hraðar á 18. og 19. öld. Meðan íbúafjöldi Pest tuttugufaldaðist fimmfaldaðist íbuafjöldinn einungis hinumeginn Dóná.
Ungverjar komu á fót byltingarstjórn árið 1849 og voru ekki hrifnir af endurreisn Habsborgarvaldsins og fengu loks sjálfstjórn innan Austurríska-Ungverskakeisaradæmisins. Samanlagður íbúafjöldi borganna sjöfaldaðist frá 1840 til 1900 og varð 730.000 manns.
Á tuttugustu öldinni var mestur vöxtur í úthverfum borgarinnar, sérstaklega í Újpest og Kispest, með auknum hlut borgarinnar í iðnaðarframleiðslu landsins. Mannfall Ungverja í Fyrri heimsstyrjöldinni og missir tveggja þriðju landsvæðis síns tafði vöxtinn einungis um stundarsakir, en Búdapest var orðin höfuðborg í smærra en fullvalda ríki. 1930 var íbúatalan komin í eina milljón og því til viðbótar bjuggu 400.000 manns í úthverfum.
Milli 20% og 40% af 250,000 gyðingum í Búdapest féllu fyrir Nasiatum og Boga kross hreinsunum 1944 og 1945. [1], [2] Engu að síður er Búdapest með hæsta hlutfall gyðinga af evrópskum borgum.
1.janúar 1950, var landsvæði Búdapest stækkað umtalsvert. Borgin bætti fyrir skaðann sem hún hlaut í umsæatri sovíetmanna 1944 á sjötta og sjöunda áratugnum og var með því skólabókardæmi um nýtanleika í byggingarstíl fremur en fegurð, sem afleiðing kommúnistastjórnarinnar (1947–1989) upp frá 1960. frá 1980 hefur íbúum borgarinnar líkt og landsins farið fækkandi.
[breyta] Íbúaþróun
- 1800: 54,200 íbúar
- 1830: 102,700
- 1850: 178,000
- 1880: 370,800
- 1900: 733,400
- 1925: 957,800
- 1990: 2,016,100
- 2003: 1,719,343
[breyta] Hverfi Búdapest
Borgarhverfin eru númeruð réttsælis á svipaðan hátt og París
Upphaflega voru hverfin 10 við sameiningu borganna þriggja 1873. 1950 var Búdapest sameinuð nokkrum nágrannasveitarfélögum og vherfin urðu 22. Nú eru hverfin 23, 6 í Buda, 16 í Pest and 1 á eyjunni milli þeirra.
[breyta] Vegir
Allar aðalbrautir Ungverjalands liggja til Búdapest. milli 1990-1994, voru götunöfn færð til fyrra horfs, þess sem þekktist á síðari hluta 19. aldar, kommúnískum nöfnum var hafnað.
[breyta] Neðanjarðarlestir
Neðanjarðarlestakerfi Búdapest, Metro, er næst elsta kerfi sinnar tegundar í evrópu. Upprunalega leiðin er merkt M1 ellagar kölluð gulaleiðin. Hún var endurgerð til að þjóna áhugamönnum um söguna. M2 (rauð) og M3 (blá), voru teknar í notkun síðar, unnið er að gerð M4 og hafist verður handa við M5 á næsta ári.
[breyta] Ýmislegt
[breyta] Fyrir ferðamenn
- Búdapest (Ungverjaland fyrir gesti)
- Búdapest á heimsminjaskrá
- Snið:Wikitravelpar
- LonelyPlanet.com
- Erlend sendiráð í Búdapest
- Metro lines, suburban railway- and tramway network in Budapest
(please translate the link name, its necessary for turists)
[breyta] Myndasöfn
- Myndir af Búdapest
- Búdapest: sögulegt yfirlit og myndir
- Búdapest panorama hringsjá
- Listrænarmyndir frá Búdapest