Gerlar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() |
|||
---|---|---|---|
![]() Escherichia coli stækkaðar 25.000 sinnum
|
|||
Vísindaleg flokkun | |||
|
|||
|
|||
|
Gerlar (eða bakteríur eða dreifkjörnungar) (fræðiheiti: Bacteria) eru stór og mikilvægur hópur lífvera. Þeir eru yfirleitt flokkaðir sem sérstakt ríki aðgreint frá ríkjum forngerla og fjórum ríkjum heilkjörnunga eða sem sérstakt yfirríki eða lén. Þar til á 9. áratug 20. aldar voru gerlar og forngerlar flokkaðir saman í ríkið Monera en á grundvelli erfðafræðirannsókna eru þessir tveir hópar nú aðgreindir í tvö ríki.
Gerlar eru algengustu lífverur sem til eru og finnast nánast alls staðar í náttúrunni, í jarðvegi, vatni og lofti, auk þess sem þeir lifa í sambýli við aðrar lífverur og eru í mörgum tilfellum nauðsynlegir líkamsstarfssemi lífveranna. Nokkrir gerlar valda þó sýkingum og/eða sjúkdómum og teljast sýklar, en sýklalyf eru notuð til að vinna á þeim.