Hæstiréttur Íslands
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Íslensk stjórnmál![]() Þessi grein er hluti af greinaflokknum: Íslensk stjórnmál |
|
Hæstiréttur Íslands er æðsti dómstóll landsins og hið hærra af tveimur dómsstigum. Héraðsdómstólarnir eru hið lægra. Níu dómarar sitja í dómstólnum og eru skipaðir af forseta Íslands samkvæmt tillögum dómsmálaráðherra. Dómstóllinn er ekki nefndur á nafn í stjórnarskránni en um hann gilda lög um dómstóla nr. 15/1998. Aðsetur Hæstarétts er við Lindargötu 2 í Reykjavík, í húsi sem var sérstaklega byggt fyrir starfsemi hans og tekið í notkun 1996.
Dómstóllinn var stofnaður með lögum nr. 19/1919 og tók til starfa árið 1920. Áður hafði Landsyfirréttur verið æðsti dómstóllinn innanlands, en dómum hans mátti áfrýja til Hæstaréttar Danmerkur í Kaupmannahöfn. Með stofnun Hæstaréttar fluttist lokaorðið í íslenskum dómsmálum heim til Íslands.