Hreindýr
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hreindýr Ástand stofns: Í lítilli hættu
|
|||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Skógarhreindýr í Kanada
|
|||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | |||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||
Rangifer tarandus (Linnaeus, 1758) |
|||||||||||||||||
|
Hreindýr eru hjartardýr sem finna má víða á norðurhveli jarðar. Þau eru einstaklega vel aðlöguð að lifa af kulda og snjóþyngsli að vetrarlagi. Andstætt öllum öðrum hjartardýrum bera bæði kynin horn.
Hreindýr má finna á Íslandi, Noregi, norðurhluta Svíþjóðar og Finnlands, á Svalbarða, á norðursvæði evrópska hluta Rússlands þar á meðal Novaya Zemlya, í Asíu hluta Rússlands allt til Kyrrahafs, í Norður-Ameríku, á Grænland, í Kanada og Alaska.
Tamin hreindýr er aðallega að finna í norður Skandinavíu og Rússlandi (bæði í evrópska hlutanum og í Síberíu). Villt hreindýr er að finna í Norður-Ameríku og á Grænlandi. Hreindýr í Norður Ameríku og á Grænlandi eru villt en einu núlifandi villtu hreindýrin í Evrópu er að finna á nokkrum stöðum hátt til fjalla í suður Noregi. Íslensku hreindýrir eru afkomendur taminna norskra hreindýra þó svo að þau séu nú villt.
Efnisyfirlit |
[breyta] Lýsing
Mikil munur er á stærð dýra allt eftir undirtegundum. Í íslenska stofninum er fallþungi á kúm á milli 30 til 40 kg en á törfum milli 80 og 100 kg. Tamin hreindýr í Skandinvíu eru iðulega stærri, fallþungi á kúm milli 40 - 100 kg og hjá törfum 70 - 150 kg. Kanadísk hreindýr eru mun stærri og er þar algengt að tarfarnir nái 300 kg fallþyngd. Bæði kynin hafa horn þau vaxa árlega. Þegar þau eru að vaxa eru þau mjúk og klædd dökkbrúnni, flauelskenndri og æðaríkri húð. Þegar þau eru fullvaxin, harðna þau og að lokum falla hornin af dýrunum. Í skandinavísku undirtegundinni fella eldri tarfar hornin í desember, ungir tarfar snemma vors og kýrnar um mitt sumar.
Hreindýrin eru jórturdýr með fjóra maga. Þau eru jurtaætur og bíta fléttur, starir, grös, lyng, blómplöntur og sveppi. Á veturna krafsa þau upp snjóinn til að komast að fæðu, aðallega fléttur og skófir.
Hreindýrafeldurinn er í tveimur lögum, þétt stutt undirhár og löng yfirhár. Hárin eru hol að innan, mjög þétt og einangra þess vegna vel. Feldurinn er oftast dökkbrúnn á sumrin en ljósari á veturna. Hreindýr fljóta vel í vatni og hika ekki við langa sundspretti yfir ár og vötn.
[breyta] Útbreiðsla
Hreindýr eru eindregin hjarðdýr en hóparnir eru misstórir eftir árstíma. Fullorðnir tarfar fara oft einförum utan fengitíma. Villt hreindýr fara oftast á milli beitarsvæða á vorin og haustin. Á sama hátt eru flest tamin hreindýr flutt milli beitarsvæða vor og haust. Tiltölulega stórir hófar dýranna auðvelda þeim yfirferðir yfir snjóbreiður og túndrur.
Um tvær miljónir hreindýra lifa í Norður-Ameríku. Í Evrópu og Asíu lifa um 5 miljónir, flest þeirra tamin eða hálftamin. Síðustu viltu hreindýrin í Evrópu er að finna í suðurhluta Noregs. Þau eru af undirtegundinni R. tarandus tarandus. Tamin hreindýr í Skandinavíu eru flest blönduð af undirtegundunum tarandus og fennicus - finnsk skógarhreindýr.
[breyta] Hreindýr á Íslandi
Hreindýr voru til Íslands á árunum 1771 – 87 frá Finnmörku í Noregi. Þau voru sett á land í Vestmannaeyjum, á Suður- og Suðvesturlandi, á Norðausturlandi og á Austurlandi. Þrír fyrstu hóparnir sem fluttir voru til landsins, til Vestmannaeyja og Rangárvallasýslu árið 1771, Reykjaness árið 1777 og til Norðurlands árið 1784, dóu allir út. Talið er að harðir vetur, hagleysa og ofbeit í vetrarhögum hafi ráðið þar mestu um. Hins vegar dafnaði sá hópur sem fluttur var til Vopnafjarðar árið 1787 og halda þau nú til á hálendinu norðan og norðaustan við Vatnajökul og á Austfjörðum.
[breyta] Hreindýraveiðar
Hreindýr hafa verið veiðidýr manna allt frá steinöld, meðal annars má finna hellamálverk af hreindýrum Lascaux-hellinum. Allsstaðar þar sem hreindýr voru villt voru þau veidd, oft rekin saman til slátrunar. En má finna t.d. í Noregi og á Grænlandi (bæði frá tímum norrænna mann þar og inuíta) steinhleðslur sem notaðar hafa verið til að reka dýrin þangað sem auðvelt var að slátra þeim.
Þar sem en eru villt hreindýr eru þau veidd en þó alstaðar undir ströngu eftirliti. Í Norður-Ameríku hafa einungis frumbyggjarnir (indíánar, inuítar og yipik) leifi til að veiða dýrin. Árlega eru um 900 dýr felld á Íslandi samkvæmt ströngu kvótakerfi.
[breyta] Hreindýrabúskapur
Hreindýrabúskapur hafur um aldaraðir gegnt mikilvægu hlutverki fyrir líf og afkomu allflestra frumbyggjaþjóða á norðurheimskautasvæðinu í Evrópu og Asíu. Sérstaklega er þar um að ræða Sama, Nenet, Khant, Evenk, Jukaghir, Tjuktji og Koryak. Sennilega hafa menn byrjað að temja hreindýr þegar á bronsöld (um 1500 árum f.Kr.). Aðallega er hreindýrabúskapur stundaður vegna kjöts, fellds, og horna. Áður fyrr voru hreindýr einnig notuð sem mjólkurdýr og dráttardýr. Í Síberíu voru hreindýr einnig notuð sem reiðdýr enda eru hreindýrin í Síberíu talsvert stærri en þau Skandinavísku. Hreindýrahjarðir hvers eiganda eru allt frá nokkrum hundruðum dýra til fleiri þúsunda. Hreindýr eru eiginlega hálftamin og ganga laus árið um kring þó eigendur hafi eftirlit með þeim og flytji þau milli beitisvæða allt eftir árstíma. Hreindýrahorn eru möluð og seld sem lyf í Austur-Asíu.
[breyta] Tegundir
- Skógarhreindýr (R. tarandus caribou), fundist áður á túndrum og skógarsvæðum í norðurhluta Norður-Ameríku allt frá Alaska í vestri til Nýfundnalands í austri og allt suður til New England. Þau eru hins vegar horfin af stærstum hluta þessa svæðis og eru allstaðar í útrýmingarhættu nema í norðurhluta Quebec og Labrador í Kanada.
- Heimaskautahreindýr (R. tarandus eogroenlandicus) var undirtegund á austur Grænlandi fram að aldamótum 1900 sem nú er útdauð.
- Finnsk skógarhreindýr (R. tarandus fennicus), er að finna í suðurhluta Finnlands og í norður Rússlandi og í Síberíu.
- Grant hreindýr (R. tarandus granti) er að finna í Alaska og Yukon og Norðvesturhéruðum Kanada.
- Grænlandshreindýr eðaTúndruhreindýr (R. tarandus groenlandicus), er að finna í Nunavut og Norðvesturhéruðum Kanada og á vestur Grænlandi.
- Peary hreindýr (R. tarandus pearyi), er að finna í eyjunum í norðurhluta Nunavut og Norðvesturhéruðum Kanada.
- Svalbarðahreindýr (R. tarandus platyrhynchus), er að finna á Svalbarðseyjum. Þessi hreindýr eru minnst af öllum hreindýrategundum.
- Villihreindýr (R. tarandus tarandus), er að finna í Skandinavíu, norður Síberíu og norður Kanada.
Á Rangifer.net map er útbreiðslukort yfir hinar ýmsu undirtegundir af hreindýrum.
[breyta] Heimildir
- Reindeer Roundup! A K-12 Educator's Guide to Reindeer in Alaska. 2004. Carrie Bucki with Greg Finstad and Tammy A. Smith.
Reindeer Research Program, University of Alaska Fairbanks.