Madeiraeyjar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Madeiraeyjar eru lítill eyjaklasi sem tilheyrir Portúgal á milli 32º 22' 20 og 33º 7' 50'' breiddargráðu og 16º 16' 30 V og 17º 16' 39'' V lengdargráðu. Tvær byggðar eyjar eru í eyjaklasanum; Madeira er stærri eyjan 741 km² og Porto Santo sú minni, aðeins 42 km². Að auki eru þrjár óbyggðar smáeyjar kallaðar Ilhas Desertas og aðrar þrjár óbyggðar eyjar, kallaðar Selvageneyjar, sem eru nær Kanaríeyjum en Madeira. Portúgalar uppgötvuðu eyjarnar árið 1418. Þær eru nú sjálfstjórnarhérað innan Portúgal. Eyjarnar draga nafn sitt af lárviðarskógi (madeira þýðir „viður“ á portúgölsku) sem er á undanhaldi á suðurhluta Madeira. Skógurinn er á heimsminjaskrá UNESCO. Eyjarnar eru einnig frægar fyrir samnefnt vín sem er styrkt vín, mikið notað í matargerð.
Norður-Afríka: Alsír · Egyptaland (að hluta) · Líbýa · Marokkó · Súdan · Túnis · Vestur-Sahara
Vestur-Afríka: Benín · Búrkína Fasó · Fílabeinsströndin · Gambía · Gana · Gínea · Gínea-Bissá · Grænhöfðaeyjar · Líbería · Malí · Máritanía · Níger · Nígería · Senegal · Síerra Leóne · Tógó
Mið-Afríka: Angóla · Austur-Kongó · Gabon · Kamerún · Mið-Afríkulýðveldið · Miðbaugs-Gínea · Saó Tóme og Prinsípe · Tsjad · Vestur-Kongó
Austur-Afríka: Búrúndí · Djíbútí · Erítrea · Eþíópía · Kenýa · Kómoreyjar · Madagaskar · Malaví · Máritíus · Mósambík · Rúanda · Sambía · Seychelleseyjar · Simbabve · Sómalía · Sómalíland · Tansanía · Úganda
Sunnanverð Afríka: Botsvana · Lesótó · Namibía · Suður-Afríka · Svasíland
Yfirráðasvæði: Kanaríeyjar · Ceuta og Melilla · Madeiraeyjar · Mayotte · Réunion · Sankti Helena og yfirráðasvæði