Kemal Atatürk
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mústafa Kemal Atatürk (1881—10. nóvember 1938) var stofnandi og fyrsti forseti Lýðveldisins Tyrklands. Hann fór fyrir sæmilega friðsamri byltingu í kjölfar fyrri heimsstyrjaldarinnar þar sem höfuðborgin var flutt frá İstanbul til Ankara og keisaraveldið afnumið. Hann var mikill frömuður í því að gera Tyrkland vestrænna en það hafði verið, meðal annars innleiddi hann latneskt stafróf fyrir tyrknesku og bannaði fjölkvæni. Enn í dag er hann í miklu uppáhaldi hjá mörgum Tyrkjum og myndir af honum hanga víða uppi í skólastofum, stofum og víðar.