Ákveða
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Í línulegri algebru er ákveða marglínuleg vörpun , sem varpar n×n ferningsfylki (eða n mörgum n-víðum vigrum) yfir í rauntölu, sem býr yfir eiginleikum sem gerir vörpunina einstaka, þ.e., ein og aðeins ein slík vörpun er til fyrir hverja heiltölu n.
- Vörpunin er lokuð undir samlagningu (baugur)
- Vörpunin er lokuð undir margföldun við tölu.
- Ef línuvigrar fylkisins víxlast skiptir vörpunin um formerki:
- Sé venjulegur grunnur fyrir er ákveða fjölskyldunnar 1:
Ákveðan er táknuð
Þ.e, vigrum fjölskyldunnar er raðað sem línuvigrar fylkis A, og ákveðan af A er detA
[breyta] Ákveður 2×2 fylkja
Ákveða 2×2 fylkis er skilgreind sem fyrir vigrana og .
Ákveða 2×2 fylkis jafngildir flatarmáli samsíðungs með hliðarvigranna x og y.
[breyta] Ákveður 3×3 fylkja
Ákveða 3×3 fylkis er skilgreind sem
- = aei + bfg + cdh − afh − bdi − ceg.
Krossfeldi þrívíðra vigra er skilgreint út frá 3×3 ákveðu.
[breyta] Almennar reglur um ákveður
- det(Ac) = det(A)c
- detAB = detAdetB
- Sé er A andhverfanlegt fylki.
- Séu einhverjar tvær línur í A eins er detA = 0 (Sjá Hornalínugeranleiki og Reiknirit Gauss)
- Sé einhver lína í A með núll í öllum stökum er detA = 0
- Sé A n×n efra þríhyrningsfylki er , þ.e. margfeldi stakanna á hornalínunni.
- (sjá bylt fylki)
- þar sem að λ1...λn eru eiginvigrar A.
- , þar sem C er hjáþáttafylki A.
- fyrir fasta tölu b < n. Þá er Cxy xy-hjáþáttur fylkisins A, og Axy er fylkið A þar þar sem að x-ta lína og y-ti dálkur hafa verið fjarlægð. axy eru þá stakið í x-tu línu, y-ta dálki í A.
Greinar í stærðfræði tengdar línulegri algebru |
Vigur | Lína | Fylki | Plan | Háplan | Vigurrúm | Innfeldisrúm | Línuleg spönn | Línuleg vörpun | Línuleg jöfnuhneppi | Línulegt óhæði | Línuleg samantekt | Línulegur grunnur | Dálkarúm | Raðarúm | Þverlægni | Eigingildi | Eiginvigur | Eiginrúm | Kennimargliða | Útfeldi | Krossfeldi | Innfeldi | Ákveður | Bylta | Fylkjaliðun (LU-þáttun, QR-þáttun) | Hornalínugeranleiki | Hjáþættir | Gauß-eyðing | Gauß-Jordan eyðing | Gram-Schmidt reikniritið | Regla Cramers | Rófsetningin |