Gæsalappir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gæsalappir eru greinarmerki sem notuð eru til að afmarka beina ræðu, orðréttar tilvitnanir, einstök orð og orðasambönd (m.a. sérnöfn, til að gefa í skyn eða koma á framfæri háði eða kaldhæðni) o.fl. Þær samanstanda af opnunargreinarmerki og lokunargreinarmerki, og fer það eftir tungumáli, málvenjum o.fl. hvort þessi tvö merki eru sama táknið.
Efnisyfirlit |
[breyta] Nafnsifjar
Orðið „gæsalappir“ er komið af þýska orðinu „gänsefüsschen“ sem er talmál, „gåsefødder“ þekkist í dönsku sem tökuorð úr þýsku en algengara er að tala um „gåseøjne“ eða „anførselstegn“, elsta dæmi Orðabókar Háskólans um orðið „gæsalappir“ er úr bókinni Stuttur leiðarvísir fyrir alþýðu til þess að skrifa íslenzku rjett og greinilega eftir Magnús Jónsson.
[breyta] Gæsalappir í ýmsum tungumálum
Tungumál | Venjubundnar | Öðruvísi | Bil | ||
---|---|---|---|---|---|
Tvöfaldar | Einfaldar | Tvöfaldar | Einfaldar | ||
Afríkanska | „…” | ‚…’ | |||
Albanska | «…» | ‹…› | “…„ | ‘…‚ | |
Hvítrússneska | «…» | „…“ | |||
Búlgarska | „…“ | ‚…‘ | |||
Kínverska | 「…」 | 『…』 | “…” | ‘…’² | |
Króatíska | »…« | ›…‹ | |||
Tékkneska | „…“ | ‚…‘ | »…« | ›…‹ | |
Danska | »…« | ›…‹ | „…“ | ‚…‘ | |
Hollenska | „…” | ‚…’ | ”…” | ’…’ | |
Enska¹ | “…” | ‘…’ | 1~2 pt | ||
Eistneska | «…» | „…“ | |||
Finnska | ”…” | ’…’ | »…» | ›…› | |
Franska³ | « … » | ‹ … ›¹ | “…” | ‘…’ | ¼ em |
Þýska³ | „…“ | ‚…‘ | »…« | ›…‹ | |
Gríska | «…» | ‹…› | “…„ | ‘…‚ | 1 pt |
Ungverska | „…” | »…« | |||
Íslenska | „…“ | ‚…‘ | |||
Írska | “…” | ‘…’ | 1~2 pt | ||
Ítalska³ | «…» | “…” | ‘…’ | 1~2 pt | |
Japanska | 「…」 | 『…』 | (5) | ||
Lettneska | «…» | „…“ | |||
Litháíska | „…“ | ‚…‘ | «…» | ‹…› | |
Norska | «…» | ‘…’ | “…” | ‹…› | |
Pólska | „…” | ‚…’ ² ⁴ | «…» ² | ||
Portúgalska | “…” | ‘…’ | «…» | ‹…› | 0~1 pt |
Rúmenska | „…“ | ‚…‘ | «…» | ‹…› | |
Rússneska | «…» | „…“ | |||
Serbneska | „…“ | ‚…‘ | »…« | ›…‹ | |
Slóvakíska | „…“ | ‚…‘ | »…« | ›…‹ | |
Slóvenska | „…“ | ‚…‘ | »…« | ›…‹ | |
Sorbian | „…“ | ‚…‘ | |||
Spænska | «…» | ‹…› | “…” | ‘…’ | 0~1 pt |
Sænska | ”…” | ’…’ | »…» | ›…› | |
Sviss³ | «…» | ‹…› | |||
Tyrkneska | «…» | ‹…› | “…” | ‘…’ | 0~1 pt |
Úkraínska | «…» | „…“ |
- Gæsalappirnar eru í lengri tilvitnunum endurteknar í byrjun hverrar línu.
- Inni í annari tilvitnun.
- Í Sviss eru sömu gæsalappir notaðar í frönsku, þýsku og ítölsku.
- Sjaldgæfar.
[breyta] Tákn
[breyta] Þýskar gæsalappir
Þýskar gæsalappir eru einnig notaðar í íslensku, búlgörsku og rússnesku.
Dæmi | Unicode (í tugakerfinu) | HTML | Lýsing |
---|---|---|---|
‚O‘ | U+201A (8218), U+2018 (8216) | ‚ ‘ | Einfaldar þýskar gæsalappir (hægri og vinstri) |
„O“ | U+201E (8222), U+201C (8220) | „ “ | Tvöfaldar þýskar gæsalappir (hægri og vinstri) |
[breyta] Gæsalappir í Word (í Windows)
- Halda niðri Alt takkanum og stimpla inn eftirfarandi númer
- Opnunargæsalöpp „ Alt 0132
- Lokunargæsalöpp “ Alt 0147
[breyta] Heimild
- Svar við „Hver er uppruni íslensku gæsalappanna? Eru þær notaðar í öðrum ritmálum?“ á Vísindavefnum. Sótt 6. október 2005.
[breyta] Tenglar
- Auglýsing um greinarmerkjasetningu (Sbr. sérstaklega 11.gr.)
- „Ritreglur“ varðandi Tilvitnunarmerki (gæsalappir) hjá Íslenskri málstöð.
- Gæsalappir í HTML, SGML og XML