Varsjárbandalagið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Varsjárbandalagið var hernaðarbandalag Sovétríkjanna og nokkurra annarra kommúnistaríkja í Austur-Evrópu á tímum Kalda stríðsins. Það var stofnað að í Varsjá þann 14. maí 1955 að frumkvæði Nikita Krútsjov, þáverandi leiðtoga Sovétríkjanna. Bandalagið var hugsað sem svar við Atlantshafsbandalagi vesturveldanna sem stofnað var 1949. Sérstaklega var það innganga Vestur-Þýskalands í NATO sem varð kveikjan að stofnun Varsjárbandalagsins.
Varsjárbandalagið var formlega leyst upp hinn 1. júlí 1991.
[breyta] Meðlimir
- Sovétríkin
- Albanía, dró sig úr bandalaginu 1968
- Austur-Þýskaland
- Búlgaría
- Pólland
- Rúmenía
- Tékkóslóvakía
- Ungverjaland