17. mars
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Feb – Mars – Apr | |||||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La | |||
1 | 2 | 3 | |||||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | |||
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | |||
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | |||
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |||
2007 Allir dagar |
17. mars er 76. dagur ársins (77. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 289 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 624 - Múhameð vann sigur á andstæðingum sínum frá Mekka í orustunni við Badr.
- 1610 - Geirþrúðarbylur geysaði. Mikið illviðri stóð í einn dag og urðu tugir manna úti, aðallega í Borgarfirði og í Miðfirði.
- 1757 - Undir Eyjafjöllum fórust 42 menn af 3 skipum frá Vestmannaeyjum.
- 1805 - Ítalska lýðveldið varð Konungsríkið Ítalía og varð þá Napóleon Bónaparte konungur Ítalíu, en var áður forseti.
- 1917 - Blaðið Tíminn hóf göngu sína. Hann varð dagblað árið 1947.
- 1965 - Leikfélag Reykjavíkur hóf að sýna farsann Þjófar, lík og falar konur eftir Dario Fo, en það varð eitt af vinsælustu leikritum þeirra.
- 1969 - Golda Meir varð forsætisráðherra Ísraels. Hún var frá Milwaukee í Wisconsin í Bandaríkjunum.
- 1987 - Alþingi samþykkti ný lög, sem afnámu prestskosningar að mestu. Þær höfðu verið tíðkaðar frá 1886.
- 1988 - Fyrsta íslenska glasabarnið fæddist og var það tólf marka drengur.
- 2003 - Robin Cook, innanríkisráðherra Breta sagði af sér vegna ágreinings um áætlanir um stríð á hendur Írak.
[breyta] Fædd
- 1933 - Penelope Lively, rithöfundur.
[breyta] Dáin
- 1781 - Johannes Ewald, danskt leikskáld (f. 1743).
- 1782 - Daniel Bernoulli, svissneskur eðlis- og stærðfræðingur (f. 1700).
- 1833 - Magnús Stephensen (f. 1863), konferensráð, lögmaður og dómstjóri í Viðey.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |