25. nóvember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Okt – Nóvember – Des | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
2006 Allir dagar |
25. nóvember er 329. dagur ársins (330. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 36 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1491 - Umsátur hófst um Granada, síðustu borg Mára á Spáni.
- 1940 - Hafsvæðið milli Grænlands og Íslands var lýst hættusvæði af bresku herstjórninni á Íslandi. Þannig var fiskimiðum lokað fyrir sjómönnum til 21. janúar 1941.
- 1960 - Mirabal-systurnar í Dóminíska lýðveldinu voru myrtar af útsendurum einræðisherrans Rafael Leónidas Trujillo.
- 1961 - Sundlaug Vesturbæjar í Reykjavík var vígð.
- 1970 - Japanski rithöfundurinn Yukio Mishima framdi harakírí ásamt tveimur fylgismönnum eftir misheppnað valdarán.
- 1975 - Súrínam fékk sjálfstæði frá Hollandi.
- 1993 - Messósópransöngkonan Theresa Berganza kom fram á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói.
- 1999 - Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað að 25. nóvember skuli vera alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi til minningar um Mirabal-systurnar.
[breyta] Fædd
- 1844 - Karl Benz, þýskur verkfræðingur og bifreiðahönnuður (d. 1929).
- 1915 - Augusto Pinochet, einræðisherra í Chile (d. 2006).
- 1941 - Percy Sledge, bandarískur sálarsöngvari.
[breyta] Dáin
- 1997 - Hastings Banda, forseti Malaví (f. 1906).
- 1998 - Nelson Goodman, bandarískur heimspekingur (f. 1906).
- 2005 - George Best, norðurírskur knattspyrnumaður (f. 1946).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |