1. nóvember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Okt – Nóvember – Des | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | ||
2006 Allir dagar |
1. nóvember er 305. dagur ársins (306. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 60 dagar eru eftir af árinu. Dagurinn nefnist Allraheilagramessa og í Mexíkó kallast hann Dagur hinna dauðu.
[breyta] Atburðir
- 1197 - Jón Loftsson goðorðsmaður í Odda á Rangárvöllum og fóstri Snorra Sturlusonar lést, 73 ára gamall. Hann var einn voldugasti höfðingi á Íslandi um sína daga.
- 1710 - Er hringt var til messu á Hólum rifnaði kirkjuklukkan „af engri orsök, svo menn vissu“, segir Mælifellsannáll.
- 1845 - Samfelldar veðurathuganir hófust í Stykkishólmi og var Árni Thorlacius upphafsmaður þeirra. Þar er elsta veðurathugunarstöðin á Íslandi.
- 1947 - Síld fannst í Hvalfirði og hófust veiðar. Á fjórum mánuðum veiddist síld í magni, sem á sér enga hliðstæðu hér við land að vetrarlagi.
- 1961 - Vilhjálmur Einarsson íþróttakappi stökk 175 cm í hástökki án atrennu innanhúss og var það einum cm hærra en gildandi skráð heimsmet.
- 1967 - Almannagjá var friðuð fyrir bílaumferð og lengdist þá leiðin frá Reykjavík til Þingvalla um 4 km.
- 1974 - Fjölmennasti miðilsfundur á Íslandi var haldinn á Hótel Loftleiðum og var sóttur af um 200 manns.
- 1980 - Skúli Óskarsson lyfti 315,5 kg í réttstöðulyftu í 72 kg flokki og bætti með því heimsmetið um 0,5 kg.
- 1988 - Fyrsta fjórburafæðing á Íslandi þar sem öll börnin lifðu, allt stúlkur.
- 1991 - Kvikmyndin Hvíti víkingurinn eftir Hrafn Gunnlaugsson var frumsýnd.
- 2004 - Eldgos hófst í Grímsvötnum.
[breyta] Fædd
[breyta] Dáin
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |