Microsoft Windows
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Windows XP í notkun |
|
Vefsíða: | Vefsetur Microsoft |
Útgefandi: | Microsoft |
Kjarni : | NT 5.1.X |
Leyfi: | EULA |
Staða Verkefnis: | Alltaf í þróun |
Microsoft Windows er fjölskylda stýrikerfa fyrir einkatölvur þó að aðrar útgáfur séu til, t.d. fyrir netþjóna og lófatölvur.
Efnisyfirlit |
[breyta] Byrjunin
Það var árið 1985 sem Microsoft kynnti fyrst til sögunnar stýrikerfið Windows. Var það þá viðbót við MS-DOS sem mótsvar við hinu grafíska notendaviðmóti sem Apple Macintosh gerði frægt. Með samningum við IBM, stærsta tölvuframleiðandann á þessum tíma, náði Microsoft markaðsyfirráðum í stýriskerfasölu með um 90% markaðshlutdeild.
[breyta] Hlaupið stutt yfir söguna
- Sjá einnig: Listi yfir útgáfur Microsoft Windows
Fyrsta sjálfstæða útgáfan af Windows, 1.0, kom út árið 1985 eins og áður segir. Sú útgáfa náði aldrei miklum vinsældum. Windows 2.0 kom út 1987 og náði aðeins meiri vinsældum en forveri þess. Í útgáfu 2.03 varð mikil breyting, þá voru kynntir svokallaðir fljótandi gluggar. Apple Inc. lögsótti þá Microsoft þar sem talið var að höfundarréttur Apple væri brotinn. Þremur árum seinna lét Microsoft frá sér útgáfu 3.0. Sú útgáfa var sú fyrsta frá Microsoft til að seljast í meira en 2 milljónum eintaka fyrsta hálfa árið á markaðnum. Það hafði mun þróaðra viðmót og hægt var að vera með mörg forrit í gangi í einu.
[breyta] Um nokkur kerfi
[breyta] Windows ME
Það kerfi átti að vera mikið tímamótaverkefni en fór í vaskinn vegna skorts á stöðugleika, Windows ME var oft kallað Mistake Edition. Með Windows ME kom einnig Windows Movie Maker til sögunnar og var síðasta Windows stýrikerfið sem notaðist við Windows 9x kjarnann.
[breyta] Windows XP
- Sjá einnig: Windows XP
Í Október 2001 sendi Microsoft frá sér Windows XP. Það var nokkuð endurbætt útgáfa af Windows NT kjarnanum. Með Windows XP kom einnig endurbætt notandaviðmót. Windows XP var hannað með bæði skrifstofu- og heimanotkun í huga og gefnar voru út tvær útgáfur, Windows XP Home Edition og Windows XP Professional. Í raun voru kerfin eins að því undanskildu að ýmsir eiginleikar voru faldir eða óvirkir í Home Edition. Árið 2003 kom svo út Media Center-viðbótin.
[breyta] Windows Vista
Nýjasta útgáfa Windows, Windows Vista, var sett í almenna sölu 30. janúar 2007 en var í boði fyrir stórnotendur nokkrum mánuðum fyrr.
[breyta] Tenglar og heimildir
- Greinin „Microsoft Windows“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14. júní 2006.
- Vefsetur Microsoft