Richterskvarði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Richterskvarði er lograkvarði, fundinn upp af Charles Richter og Beno Gutenberg 1935 og notaður til að mæla styrk jarðskjálfta. Hvert stig í hækkun á kvarðanum gefur þrítugföldun, þannig að um er að ræða veldi af 30. Ef styrkur einhvers skjálfta er gefinn upp sem 5 stig á Richter, svo að dæmi sé tekið, þá er skjálfti upp á 8 stig 30 · 30 · 30 = 27 þúsund sinnum orkumeiri en sá fyrri. Nánar er sambandið þannig að þar sem Io er einhver grunnviðmiðunar orkulosun, I er orkan í skjálftanum og n er stigatala hans á Richterkvarða. Þessa jöfnu má leysa fyrir n og fæst þá: