Serbía og Svartfjallaland
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() |
![]() |
Fáni Serbíu og Svartfjallalands | Skjaldarmerki Serbíu og Svartfjallalands |
Kjörorð ríkisins: Ekkert | |
![]() |
|
Opinbert tungumál | Serbneska rituð með kyrilísku letri |
Höfuðborgir | Belgrad & Podgorica |
Flatarmál - Heildar - Þar af vötn |
105. sæti 102.350 km² 0,25% |
Mannfjöldi
|
70. sæti
|
Stofnun | 23. apríl 1992 |
Upplausn | 3. júní 2006 |
Gjaldmiðill | Í Serbíu: dínari (fyrir utan Kosovo sem notar evru). Í Svartfjallalandi: evra |
Tímabelti | UTC+1 |
Þjóðsöngur | Hej Sloveni |
Þjóðarlén | .yu |
Landsnúmer | +381 |
Serbía og Svartfjallaland var samband tveggja fyrrum lýðvelda Júgóslavíu: Serbíu og Svartfjallalands. Þessi tvö voru þau einu af 6 lýðveldum Sósíalíska sambandslýðveldisins Júgóslavíu sem ekki höfðu sagt skilið við það á árunum 1991-1992 en hin fjögur voru Slóvenía, Króatía, Bosnía og Hersegóvína og Makedónía. Upphaflega hét ríkið Sambandslýðveldið Júgóslavía en því var breytt með nýrri stjórnarskrá sem tók gildi 2003.
Með nýju stjórnarskránni var samstarf Serbíu og Svartfjallalands takmarkað við afmörkuð svið (t.d. varnarmál) en þau ráku sjálfstæða efnahagsstefnu og notuðu mismunandi gjaldmiðla. Í stjórnarskránni voru einnig ákvæði um að bæði ríkin gætu farið fram á að sambandinu yrði slitið ef það væri samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu sem hægt væri að halda í fyrsta lagi árið 2006. Slík atkvæðagreiðsla fór fram í Svartfjallalandi 21. maí það ár og lýsti Svartfjallaland formlega yfir sjálfstæði 3. júní og batt þannig enda á sambandið við Serbíu. Serbneska þingið lýsti því svo yfir 5. júní að Lýðveldið Serbía væri arftaki sambandsins.