Kasakstan
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
|
|||||
Kjörorð: ekkert | |||||
Þjóðsöngur: Þjóðsöngur Kasakstans | |||||
Höfuðborg | Astana | ||||
Opinbert tungumál | kasakska, rússneska | ||||
Stjórnarfar | Lýðveldi Nursúltan Nazarbayev Karim Masimov |
||||
Sjálfstætt ríki frá Sovétríkjunum |
16. desember 1991 |
||||
Flatarmál |
9. sæti 2.717.300 km² |
||||
Mannfjöldi • Samtals (2001) • Þéttleiki byggðar |
57. sæti 15.143.704 6/km² |
||||
VLF (KMJ) • Samtals • á mann |
áætl. 2005 123.992 millj. dala (55. sæti) 8,252 dalir (74. sæti) |
||||
Gjaldmiðill | tenga | ||||
Tímabelti | UTC+5 til +6 | ||||
Þjóðarlén | .kz | ||||
Alþjóðlegur símakóði | 7 |
Kasakstan (kasakska: Қазақстан, alþjóðlega hljóðstafrófið: /qɑzɑqˈstɑn/; rússneska: Казахстан, alþjóðlega hljóðstafrófið: /kəzʌxˈstan/) er stórt land sem nær yfir mikinn hluta af Mið-Asíu. Hluti landsins er vestan Úralfljóts og telst til Evrópu. Kasakstan á landamæri að Rússlandi, Kína og Mið-Asíuríkjunum Kirgistan, Úsbekistan, Túrkmenistan og strandlengju að Kaspíahafi. Kasakstan var áður Sovétlýðveldi en er nú aðili að Samveldi sjálfstæðra ríkja.
Efnisyfirlit |
[breyta] Landafræði
Kasakstan er 9. stærsta land í heiminum og liggur í Mið-Asíu. Í Suður-Kasakstan er eyðimörk hjá Sjimkent og einnig í Norður-Kasakstan. Þar er líka stór steppa í námunda við Astönu og Karaganda. Alatáfjöll liggja á landmærum Kasakstan og Kirgistan hjá Almaty. Hæsti tindurinn er um 4.572 m (15.000 ft) hár. Í Vestur-Kasakstan hjá Kaspíahafi er láglendi. Í Kasakstan eru hvirfilvindar mjög algengir, sérstaklega yfir láglendinu í Vestur-Kasakstan. Kasakstan liggur að Kaspíahafi og hefur landamæri að Aserbaídsjan og Íran.
[breyta] Saga Kasakstans
Kasakstan var í upphafi nokkurs konar stórveldi hirðingja. Orðið Kasak (en: Kazakh, kk: Қазақ, ru: Казах) á rætur í tyrknesku orði sem þýðir „frjáls maður“ eða hirðingi. Orðið stan þýðir „(föður)land“. Kasakstan mætti því þýða sem Hirðingjaland.
[breyta] Fornaldarsaga
Árið 500 f.Kr. bjuggu Sakanar í Suður-Kasakstan en þeir voru hirðingjar sem ríktu á svæðum frá Altay til Úkraínu. En þó að Sakanar væru herskáir urðu þeir að lúta í lægra haldi fyrir Alexander mikla. Í grafhýsi rétt fyrir utan Almaty fundust frægar fornleifar, sem kallaðar hafa verið „gullni maðurinn“. Þessi „gullni maður“ er sakneskur stríðsmaður í ljómandi gylltum einkennisbúningi og þykir merkilegur gripur í Kasakstan sem og í allri Mið-Asíu.
- Árið 200 f.Kr. bjuggu Húnar og Tyrkir í Mongólíu eða Norður-Kína.
- Frá 550 til 750 e.Kr. var Suður-Kasakstan undir stjórn Kök-Tyrkneska heimsveldisins (Blá-Tyrkneska heimsveldisins).
- Á 9. öld stofnaði Samanid heimsveldið, sem nú er nefnt Turkestan, borgirnar Otrar og Yasy. Veldi þetta lagði líka grunninn að Silkiveginum.
- Á 10. öld sóttu Tyrkir inn í Suður-Kasakstan og Túrkistan og náðu valdi yfir Silkiveginum og við það féll Sameinaða heimsveldið. Þó hélt menning þess enn velli innan tyrkneska heimsveldisins. Á valdatíma Tyrkja varð íslam aðaltrúarbrögðin í Kasakstan og byggingar frá þessu tímabili standa sumar hverjar enn í Túrkistan og eru heilagar byggingar í huga múslíma í Mið-Asíu .
[breyta] Gengis Khan
Árið 1130 lét Gengis Khan, keisari Mongólíu, útrýma búddisma úr Mongólíu og Norður-Kína. Gengis Khan og heimsveldi Mongólíu lagði undir sig Kasakstan og Mið-Asíu með stærsta her í heiminum á þeim tíma. Í hernum voru yfir 150.000 hermönnum. Rétt eftir að Gengis Khan dó skiptist heimsveldið á milli sona hans og sá sem varð leiðtogi í Kasakstan hét Chaghatai .
[breyta] Þrjár hjarðir í Kasakstan
Forfeður Kasaka voru Mongólar og Úsbekar. Á 16. öld yfirtóku Kasakar mongólska hjörð í Norður-Kasakstan sem hét Gullhamstrar. Kasakar voru sameinaðir í þrjár hjarðir. Þessir hamstrar voru Mikilhjörð í Suður-Kasakstan, Miðhjörð í Mið- og Norðaustur-Kasakstan, og Lítilhjörð í Vestur-Kasakstan. Hver hjörð var leidd af 3 Khanum. Titlar þeirra voru axíal, bi, og batýr.
1690 til 1720 voru tímar stóráfalla í Kasakstan. Oyratur, frá Mongóliu, lýsti Kasakstan eða hjörðunum þremur stríði á hendur. Hjarðirnar þrjár gátu ekki varið sig, svo eini kosturinn fyrir Kasaka var að biðja Rússland um hjálp.
[breyta] Kasakstan undir stjórn Rússa
Meðan Tsar réði Rússlandi var landið sífellt að stækka og yfirtaka önnur landsvæði. Þegar Oyratur yfirtók Kasakstan hafði Kasakstan engan annan valkost en að leita til Rússlands um hjálp gegn Oyratur. Hjarðirnar þrjár hétu Rússlandi hollustu árið 1731. Þegar Oyratur var bugað árið 1742 innlimaði Rússland Kasakstan. Að lokum, þegar hjarðirnar þrjár vildu ekki lengur vera hluti af Rússlandi, urðu miklar uppreisnir í Kasakstan. Um milljón Kasaka var drepin í þessum uppreisnum en landið var enn hluti af Rússlandi.
Árið 1861 sendi Rússland landflótta fólk til Kasakstans. Taras Shevchenko, úkraínskur listamaður og rithöfundur sem vildi frelsa Úkraínu, var á meðal þeirra. Meðan á fyrri heimsstyrjöldinni stóð voru vondir tímar fyrir Kasakstan. Fleiri uppreisnir voru gerðar, um 150.000 manns lét lífið og um 200.000 flutti til Kína.
[breyta] Kommúnismi og Sovétríkin
Árið 1917, rétt eftir að Rússar yfirtóku Kasakstan, reyndi Alasj Órda að mynda flokk sem hét Þjóðernissinnaflokkur Kasakstans til að frelsa Kasakstan á ný. Borgarastyrjöldin í Kasakstan var hörmuleg fyrir Kasaka. Með tíð og tíma ákvað Alasj Órda að vera með Stalín og bolsévíkum í Rússlandi. Þegar Kommúnistaflokkur Kasakstans (CPK) náði yfirráðum yfir Kasakstan þegar borgarastyrjöldinni var lokið voru Alasj Órda og allir í Þjóðernissinnaflokki Kasakstans myrtir að fyrirskipan Stalíns og Kommúnistaflokks Kasakstans. Margt fólk í Kasakstan var myrt í stjórnartíð Stalíns. Margir aðrir fluttu til Kína og Mongólíu. Kasakstan varð Sovétlýðveldi árið 1936.
[breyta] Stalín og Bækónur Geimstöðin
Stalín sendi þúsundir til Kasakstans á árunum 1936 til 1940 til að byggja upp verksmiðjuborgir í Kasakstan. Frá 1940 til 1950 var margt fólk frá Sovétlýðveldinum sent til Kasakstans til að vinna í kolanámanum eða vinnubúðinum. Magar kolanámur og vinnubúðir voru staðsettar hjá borgum eins og Karaganda og Úst-Kamenogórsk. Árið 1953 varð Nikita Kruschev forsæti í Sovétríkjunum. Hann lét loka vinnubúðum í Sovétríkjunum en hann byrjaði „Jómfrúarlandaáætlunina“ síðan steppan og land í Kasakstan var galtómt. Yfir 250.000 km² lands, einkum í Norður-Kasakstan, var uppskorið meðan „Jómfrúarlandaáætlunin“ var í gildi.
Meðan á Kalda stríðinu stór létu Sovétríkin byggja „Bækónur Geimstöðina“ í Suðvestur-Kasakstan. Þetta var eins og Nevada í Bandaríkjunum. Gerðar voru kjarnorkutilraunir og tilraunir til þess að skjóta eldflaugum upp í geim. Árið 1989 voru mestu mótmæli í öllu Sovétríkjunum í Kasakstan. Margt fólk alls staðar í Kasakstan mótmælti. Mótmælendur fylktu liði undir nafninu „Nevada-Semey Hreyfing“, og árið 1989 hættu Sovétríkin að kjarnorkutilraunum sínum. En enn í dag er eldflaugum skotið upp í geim frá Kasakstan og geimfarar eru enn að læra í Bækónur geimstöðinni.
[breyta] Nazarbaev og Lyðveldið Kasakstans
Árið 1989 varð Nursúltan Nazarbaev kjörinn forseti í Kasakstan. Árið 1991 féllu Sovétríkin. Nazarbaev vildi ekki að fara úr Sovétríkjunum, en það gerðist engu að síður og hann samþykkti það. Þann 16. desember 1991 varð Kasakstan að lýðveldinu Kasakstan. Höfuðborg Kasakstans var núna Aqmola, sem var bara lítil kolanáma. Margt fólk hélt að Nazarbaev væri ruglaður að gera þetta, en þetta var hluti af Kasakstan 2030 áætlun hans. Aqmola var gefið nafnið Astana, sem þýðir á kasöksku „Höfuðborg“.
[breyta] Kasakstan í dag
Kasakstan er núna lýðveldi í Mið-Asíu og 9. stærsta land í heiminum. Höfuðborgin er Astana, sem liggur í mið-steppanum í Norður-Kasakstan. Auðvaldið er hægt og rólega að taka yfir efnahagsmál Kasakstans. En Kasakstan svipar enn til Sovétríkjanna gömlu.
Nazarbaev er enn þá forsæti Kasakstans og hann hefur verið forseti landsins síðan Kasakstan varð lýðveldi árið 1991. Kasakskt fólk annaðhvort elskar hann mikið eða hatar hann mikið. Þó hann hafi mikið gert fyrir Kasakstan og auðséð er að honum sé annt um landið telur fólk að hann verði einræðisherra. Heilsa hans er ekki góð. Margt fólk segir að hann verði bráðum allur, en líklegt þykir að dóttir hans verði forseti eftir hans dag.
[breyta] Fylki
Kasasktan er stórt land, sem skiptist í 17 fylki og 3 borgir. Borgirnar eru Almaty, Astana, og Bækónur.
Fylki í Kasakstan
|
Borgir Í Kasakstan
|
[breyta] Efnahagsmál
Olía hefur verið afar mikilvæg fyrir efnahagsmál Kasakstans. Kasakstan hafði yfir 66.320.000.000 kr. í telkjur af olíu árið 1996. Nazarbaev vil di leggja þjóðartekjurnar fyrir. Margt fólk í Kasakstan sem vinnur í olíuiðnaðinum býr í Vestur-Kasakstan í borgum eins og Aktá og Atýrá. Kasakskar segja að Atýrá sé olíu-höfuðborgin í Kasakstan.
Það eru mörg fyrirtæki í Kasakstan, bæði frá Evrópu og Ameríku, og jafnvel Japan. Almaty er fjármálamiðstöð Kasakstans.
Fyrirtæki í Kasakstan frá Íslandi
[breyta] Auðvaldið
Í Kasakstan í dag eru yfirstétt, borgarastétt og lágstétt eins og vera ber í auðvaldskerfi. Borgarastéttin þénar einungis um 30.000 kr. mánaðarlega. Yfirstéttin býr einkum í fjallahéruðum, í risastórum húsum, en þénar þó einungis eins og millistéttarfólk í Evrópu. Lágstéttin býr við kröpp kjör í Kasakstan. Pípulagnir eru slæmar og íbúðir litlar. En þetta er ekki óalgengt að sjá í mörgum bæum í Kasakstan.
[breyta] Kazakhstan 2030
„Kazakhstan 2030“ er áætlun Nazarbaevs um að gera Kasakstan að auðugu landi. Nazarbaev vill reyna að selja mikla olíu og laða fyrirtæki frá öllum heimshornum til Kasakstans. Þegar maður fer til Kasakstans getur maður séð veggspjöld segja „Kazakhstan 2030“ alls staðar í Kasakstan.
[breyta] Peningur
Tenga er gjaldeyrir Kasakstans. Tenga kemur úr orðinu dengi í rússnesku sem þýðir bara peningur. Þann 15. nóvember 1993 hætti ríkisstjórn Kasakstans að nota rúblur og tenga var tekin í notkun í Kasakstan.
[breyta] Stjórnmál
Þann 16. desember 1986, þegar Kasakstan var enn í Sovétríkjunum, var Gennadý Kólbin forseti landsins. Hann var ekki kasakskur heldur rússneskur. Mikhaíl Gorbatsjev, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, tilnefndi Gennadý Kólbin sem forseta í Sovétlýðveldinu Kasakstan. Mikhaíl Gorbatsjev vissi að það var mikil spilling í Kommúnistaflokki Kasakstans. Það varð upphlaup alls staðar í Kasakstan vegna þess að Gennadý Kólbin var ekki kasakskur. Í Almaty voru fræg mótmæli sem hétu Djeltóksan, sem þýðir „desember“ á kasöksku. Fáir létu lífið en margt fólk slasaðist. Í Almaty er minnisvarði hjá Respúblika Alangý sem heitir Djeltóksan 1986. Þetta er minnisvarði til að heiðra nemendur sem létu lífið í mótmælunum.
Þann 22. júní 1989 varð Nazarbaev nýr forseti í Kasakstan. Hann hefur verið forseti síðan Kasakstan varð lýðveldi árið 1991. Fólk í Kasakstan annaðhvort elskar hann eða hatar hann. Hann gerði mikið fyrir Kasakstan og fjölskyldan hans líka. Konan hans, Sara Alpýsóvna, er mjög atorkusöm í efnahagsmálum Kasakstans og hún er líka forstjóri „líknarmálasjóðs fyrir börn“. Þau eiga þrjár dætur og sú elsta, Dariga Nazarbayeva, er forstjóri sjórnvarpsstöðvar í Kasakstan.
[breyta] Ríkisstjórn
Kasakstan er stjórnarskrárbundið lýðveldið. Forseti er þjóðhöfðingi og hann getur beitt neitunarvaldi. Núverandi forseti Kasakstans Núrsultan Nazarbaev, sem hefur gegnt embættinu frá því að Kasakstan varð lýðveldi. Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórninni. Núverandi forsætisráðherra er Karim Masimov en hann var kjörinn 1. janúar 2007. Þing Kasakstan er í tveimur deildum, neðri deild (madjílis) og efri deild (öldungadeild).
[breyta] Landbúnaður
Landbúnaður í Kasakstan er mjög háður olíu og búskapur. Yfir 70% landsins er bara ræktarjörð og bóndabæir. Mest er ræktað af hveiti í Kasakstan. Þess vegna er bjór í Kasakstan mjög ódýr. 0,5 lítrar af bjór kosta einungis 200TГ (100 kr.) í dúkan, sem er kasöksk verslun. Ávextir og grænmeti er ræktað í sveitinni í Kasakstan, en ávallt selt á markaði í borginni, eins og í Silóný Basar (grænn markaður). Dýr í Kasakstan sem eru mjög alþýðleg eru hestar og rollur.
[breyta] Samgöngutæki
Einungis um 53% íbúanna í Kasakstan er kasakskt fólk. Síðan Kasakstan samþykkti Rússland hafa Rússar flust til Kasakstan alls staðar. Í stærstu borgum Kasakstans, eins og Astana og Almaty og í Norður-Kasakstan, eru meira af rússnesku fólki, og eru Rússar stundum fjölmennari en Kasakar. En í bæum eins og Sjimkent og Túrkistan er um 80% íbúanna Kasakar. Í Kasakstan býr enn þá fólk frá því Stalín sendi fólk frá Sovétríkjunum í vinnubúðir til Kasakstans, eins og téténskt, úkraínskt, úsbekskt, og jafnvél hvíta-rússneskt fólk. Gyðingar frá Þýskalandi eru líka í Kasakstan, sem voru að reyna að flýja Þýskaland í seinni heimsstyrjöldinni. Taflan hér að neðan sýnir þjóðarbrot í Kasakstan frá árinu 1959 til ársins 1999, sem er næstum eins og í dag.
Samgöngutæki í Kasakstan
Þjóðerni | 1959 % | 1970 % | 1979 % | 1989 % | 1999 % |
---|---|---|---|---|---|
Kasakskar | 30,0 | 32,6 | 36,0 | 40,1 | 53,4 |
Rússar | 42,7 | 42,4 | 40,8 | 37,4 | 29,9 |
Úkraínskar | 8,2 | 7,2 | 6,1 | 5,4 | 3,7 |
Þýskar | 7,1 | 6,6 | 6,1 | 5,8 | 2,4 |
Tatarar | 2,1 | 2,2 | 2,1 | 2,0 | 1,7 |
Úsbekar | 1,5 | 1,7 | 1,8 | 2,0 | 2,5 |
Hvíta-Rússar | 1,2 | 1,5 | 1,2 | 1,1 | 0,8 |
Uigerskar | 0,6 | 0,9 | 1,0 | 1,1 | 1,4 |
Kóreskar | 0,8 | 0,6 | 0,6 | 0,6 | 0,7 |
[breyta] Tungumál
Þú getur lært kasöksku hérna í Wikibækum! |
Kasakska er opinber tungumál í Kasakstan, en ekki allir tala hana sem búa eða eru innfæddir í Kasakstan. Rússneska er reyndar töluð meira en kasakska í Kasakstan. Í fyrirtækjum er rússneska opinbert tungumál. Kasakska er aldrei töluð í fyrirtækjum. En í ríkisstjórninni er alltaf töluð kasakska vegna þess að Nazarbaev vill að kasakska verði opinbert tungumál í Kasakstan. Í borgum eins og Almaty og Astana, sem eru mjög alþjóðlegar, er rússneska töluð meira en kasakska. En ef maður fer í sveitina í Suður-Kasakstan til borga eins og Sjimkent og Túrkistan, mun maður heyra einungis kasöksku. Rússneska er venjulega tungumálið fyrir fólk til að tala við fólk af öðrum kynþáttum, en það eru margir kynþættir í Kasakstan, og rússneska er bara eins og alþjóðlegt tungumál.
[breyta] Menntun
Skólar í Kasakstan vóru á rússnesku. Núna, síðan árið 1991, skólar eru núna bæði á rússnesku og kasöksku. Það eru skólar sem eru bara rússensku og bara kasöksku. Alþjóðlegar skólar eru stundum á ensku, en venjulega á rússnesku. Það er skóli líka í Túrkistan sem er á tyrknesku. Læsi í Kasakstan er 99,5%. Allt fólk getur lesið kýrilliskt og latínskt stafrófið, og sumir getur lesið arabískt stafrófið. Börn í Kasakstan byrja leikskóla þegar þau eru 5 eða 6 ára gömul. Árið 2004, vóru það 100 leikskólar í Kasakstan, og 135.856 börn sem fer í leikskólanum, (sem er 63% börn í Kasakstan sem eru 5 eða 6 ára gömul). Þau kenna bæða kasöksku og rússnesku tungumál í leikskólanum, þó rússnesku er töluð meira stundum. Eftir leikskóla, það er grunnskóli og þá menntaskóli. Nemendur klára í menntaskólanum á aldri 18, þá fara til háskolan. Það eru margir háskólar í Kasakstan, en margir er í Almaty.
[breyta] Menning
Kasakska menning verður fyrir áhrifum af Rússlandi, Mongólíu, og Tyrklandi. Fulkomlegt táknið í kasöksku menningunni er hirðingalegur lífsstíll. Jurtur eru ennþá mjög almennar í Kasakstan í sveitinni, og er líka tákn í kasöksku menningunni. Kasakskt fólk er líka mjög gestrisinn og er alltaf glöð til að sjá útlendingar sem er með áhúga í Kasakstan.
[breyta] Hátíðisdagar
Dagsetning | Íslenskt nafn | Kasakskt nafn | |
---|---|---|---|
1. janúar | Nýársdagur | Жаңа жыл | |
7. janúar | Jól (Rússneskt Ortodox) | Рождество Христово | |
8. mars | Alþjóðlegur dagur fyrir konur | Халықаралық әйелдер күні | |
22. mars | Nárús (Mars) | Наурыз мейрамы | |
1. maí | Fyrsta maí | Қазақстан Ұлттарының Бірлік Күні | |
9. maí | Sigurinn dagur fyrir Seinni heimsstyrjöldin | Жеңіс күні | |
30. ágúst | Stjórnarskrá dagur | Конституция күні | |
25. október | Lýðveldið dagur | Республика күні | |
16. desember | Þjóðhátíðardagur |
[breyta] Matur
Besjbarmak er þjóðmaturinn í Kasakstan. Það er með hveitimjöl undir hestakjöt. Té er líka mjög almennt í Kasakstan, og er mjög ódýrt. Þjóðdrykkurinn í Kasakstan er kúmis, sem er mjólk frá geitum. Það eru mörg kjörbúðir í borganum hvar fólk getur keypt ávextir, kjöt, og meira, eins og kjörbúðir á Íslandi.
[breyta] Trúarbrögð
Íslam er útbreiddustu trúarbrögðin í Kasakstan. Kaskastan hefur aldrei verið mjög trúað. Nær allir úbúar í Kasakstan er múslimar en einungis 3% er íbúanna eru trúuð. Því er eins farið með önnur trúarbrögð. Gyðingar frá Rússlandi búa einnig í Kasakstan, einkum í borgum Almaty og Pavlódar. Kristindómur og búddismi eru líka í Kasakstan, en ekki jafn útbreidd. Samfélagið í Kasakstan er undir áhrifum af íslam. Það er auðséð hvernig Kasakstan verður fyrir áhrifum af íslam, til dæmis í kasöksku; á kasöksku heilsar maður með orðunum Assalam alaikum. Þetta er almenn kveðja í íslömskum löndum.
[breyta] Fólk
- Abæ Kúnanbæuli - Þjóðskáld
- Alasj Órda - Stjórnmálamaður
- Al-Farabi - Heimspekingur
- Bakýtdjan Kanapjanov - Hnefaleikarhetja og Rithöfundur
- Íbrahym Altynsaryn - Skippulagði kýrilliskt stafróf í kasöksku
- Khoja Ahmed Jasaví - Þjóðskáld og Heimspekingur
- Nursúltan Nazarbaev - Forsæti
- Talgat Músabaev - Geimfari
- Toktar Ábakirov - Geimfari
[breyta] Tónlist
Kasakskt tónlist í dag er bland með pópp og hefðbundinn tónlist. Dombra, sem er kasakskur gítar, er ennþá spilast í lög í dag, pópp og hefðbundinn. Kasakskt tónlist er ekki svona almennt í Kasakstan, af því að mikið fólk í Kasakstan elskar meira tónlist frá Rússlandi, Englandi, og Bandaríkjunum. Smelltu níður til að hlusta og horfa kasakskt tónlist og smelltu hljómsveit til að lesa meira um þeim.
- Akbota Kerimbekova - Begimbaydin Zheri (mansöngur)
- Almas Kisjkenbaev - Mengilikke (mansöngur)
- Bangor - Suju degen osi ma (pópp)
- Ulytau - Turk (pópp)
- Urker - Tugan Elim (pópp)
[breyta] Samgöngutæki
Flugfélag Kasakstans er Air Astana. Ef maður vill að fara til Kasakstan frá Evrópu verður maður að fljúga með KLM frá Amsterdam, Lufthansa frá Frankfurt, Turkish Airlines frá Istanbul, Air Astana frá London eða Moskvu, eða Aeroflot. Air Astana flýgur til næstum allra áfangastaða í Kasakstan.
Járnbrautarlestir eru líka algeng samgöngutæki í Kasakstan. Maður getur farið frá Almaty til Astönu á 20 klukkutímum. Það eru einnig hópferðabílar í Kasakstan en þeir eru ekki jafn almennur ferðamáti eins og járnbrautarlestir og flugvélar. Í borgum, þegar maður vill taka leigubíl veifar maður hendi út við veginn og bíður eftir að bíll komi. Leigubílar eru ekki á vegum hins opinbera heldur einkareknir. Þetta er ódýr og mjög almennur ferðamáti í borgum eins og Almaty.
[breyta] Myndagallerí
[breyta] Tenglar
- Air Astana
- Bank Kasakstans
- CIA Worldfactbook: Kazakhstan
- Forsætið Kasakstans opinber vefsíða
- Irgetas Kasakskt Spjall
- Khabar Fréttir
- Ríkisstjórn Kasakstans
- Um Kasakstan
- USA Department of State Upplýsingar
Afganistan · Armenía1 · Aserbaídsjan (að hluta) · Austur-Tímor · Bangladess · Barein · Brúnei · Bútan · Egyptaland (að hluta) · Filippseyjar · Georgía1 (að hluta) · Heimastjórnarsvæði Palestínumanna · Indland · Indónesía · Íran · Írak · Ísrael · Japan · Jemen · Jórdanía · Kambódía · Kasakstan (að hluta) · Katar · Kirgistan · Kína · Kúveit · Kýpur1 · Laos · Líbanon · Malasía · Maldíveyjar · Mjanmar · Mongólía · Nepal · Norður-Kórea · Óman · Pakistan · Rússland (að hluta) · Sameinuðu arabísku furstadæmin · Sádí-Arabía · Singapúr · Srí Lanka · Suður-Kórea · Sýrland · Tadsjikistan · Taíland · Túrkmenistan · Tyrkland (að hluta) · Tyrkneska lýðveldið á Norður-Kýpur · Tævan · Úsbekistan · Víetnam
1. Venjulega talin til Asíu landfræðilega, en oft talin til Evrópulanda af menningarlegum og sögulegum ástæðum.
Undir yfirráðum annarra ríkja: Álandseyjar · Færeyjar · Gíbraltar · Guernsey · Jersey · Mön · Svalbarði